Finnst Rice Krispiesblanda alltaf jafn góð. Ákvað að breyta til og bæta mars súkkulaði saman við blönduna.
Þið ættuð prófa þessa hún er guðdómlega góð
Uppskrift:
350 g 56 % Nóa Síríus súkkulaði
150 g Mars súkkulaðistykki
425 g síróp
150 g smjör
280 g Rice Krispies
Aðferð:
Allt nema Rice Krispies sett saman í pott, hitað þar til allt er bráðið. Að lokum er Rice Krispieskornin sett saman við og blandan hrærð saman við.
Hræran er sett í smurð mót og kæld
Fylling:
1/2 líter þeyttur rjómi
2 stk bananar
Karamella (heimatilbúin eða tilbúin):
Uppskrift af heimagerðri karamellu er: 100 g púðursykur, 25 g smjör og 2 dl rjómi: Sett í pott og hitað að suðu. Látið sjóða í ca. 2 mínútur. Hræra vel í á meðan.
Aðferð:
Rjóminn er þeyttur. bananarnir skornir í bita og karamellan gerð klár. Bananabitar eru settir ofan á botninn, Rjómablandan er sett á milli botnanna, karamellan á milli og bananarnir settir ofan á í lokinn. Efri botninn er settur ofan á og kakan síðan skreytt að vild.
Áhöld sem eru notuð: Sólblómskerar, fiðrildasílikonmót, blómasílikonmót, tilbúinn sykuramssi, wilton bökunarmót, glimmer
Erfitt að standast þetta…
Elska þessi mót, bjóða upp á svo mikla möguleika!
Æðislegir sumarlitir og smá glimmer í miðjuna toppar skreytinguna.
Hvar fær maður svona sniðug form?
Mótin hafa fengist í vefverslun okkar en eru því miður uppseld í bili.
hæhæ ég var að spá hvar fékkstu þessi snildar form vá hvað mér langar í 😀
ÁHöldin fást öll í vefverslun.mommur.is. Ég er samt hrædd um að bökunarmótið sé uppseld í bili.
hvar get ég fengið svona bökunarform?
Eru þessi kökumót til?
Því miður eru þau uppseld en vonandi fáum við þau aftur fljótlega.
Er hægt að frysta þessa köku?
þetta mót fæst hjá wilton 🙂 http://www.wilton.com/store/site/product.cfm?sku=2105-150
eru þessi mót til og hvað kosta þau