Skoða

Skyrkaka með jarðarberja- og perubragði

IMG_9169

Yndisleg skyrterta með jarðarberja – og perubragði.

Að nota smákökumix sem botn var skemmtileg tilraun og kom sérlega vel út.

Uppskrift:

Botn:

Smákökumix frá Betty Crocker (ásamt því hráefni sem stendur á pakkningum egg, olía og vatn)

Fylling:

1/2 l þeyttur rjómi

1 lítil  dós jarðarberjaskyr

1 lítil dós peruskyr

2 msk jarðarberjasósa eða sulta

Nokkur Jarðarber skorin í litla bita

Ganache sem fer yfir kökuna

400 g Súkkulaði (voða gott að blanda venjulegu súkkulaði og mjólkursúkkulaði til helminga)

200 ml – 250 ml  rjómi

Aðferð:

Botninn er gerður samkvæmt leiðbeiningum á  smákökupakkningunum.  Eldfastmót spreyjað með olíuspreyi  og deigið sett í mótið og bakað við 170 gráða hita í ca. 15 mínútur.  Kælt

Fyllingin er gerð með því að þeyta rjóma, blanda skyrinu saman við ásamt jarðarberjasósu og jarðarberjabitum.  Fyllingin er sett yfir botninn þegar hann er orðinn nógu kaldur.

Ganach-ið búið til með því að bræða súkkulaði yfir vatnsbaði, rjómanaum blandað saman við og hrært vel.  Blöndunni hellt yfir fyllinguna.

Kakan er fryst í nokkrar klukkustundir áður en hún er borin fram.

Related Posts