Á litla 5 ára frænku sem á sér þann draum heitastan að verða sykurmassakona eins og ég 🙂 Stóðst ekki mátið að leyfa þessari elsku að spreyta sig á massanum.
Þegar við erum saman í eldhúsinu þá köllum við okkur frænkur.is, elska þessa snúllu.
Læt uppskrifitna fylgja með til gamans.
Sykurmassi fyrir ca. 28 cm köku
1 poki 175 g haribo sykupúðar
475-500 g flórsykur
2,5 msk vatn.
Aðferð:
Sykurpúðarnir bræddir í smurðri glerskál ásamt vatinu. Hitaðir í ca. 3-5 mínútur á hæsta styrk, hrært á milli á ca. 30 – 1 mínútna fresti. Þegar sykurpúðarnir eru bræddir (líta út eins og búðingur) þá er helmingnum af flórsykrinum blandað saman við. Borðplatan smurð með palmínfeiti eð criscofeiti, afganginum af flórsykrinum hellt á borðið og sykurpúðablöndunni þar yfir. þetta er hnoðað vel saman.
Flottar frænkur 🙂