Það er einfalt að móta kórónu svo ekki sé minnst á ef notast er við sérstakt kórónumót.
Hellið degi í form eða skerið út kórónu eftir smjörpappír. Ávaxtasafi úr niðursuðudós er settur á milli botnanna til að bleyta í kökunni. Rjómafylling er síðan sett á milli ásamt makkarónum. Kórónan er skreytt með sprautuðum rjóma og nammi.