Risaeðlukaka á eftir að vera ógnvekjandi skemmtileg á veisluborðinu. Risaeðlusnáðinn þinn á eftir að elska þessa útfærslu.
Rice krispies kökur eru muldar niður til að búa til hraun. Einnig hægt að nota hraunbita, Nóa Kropp eða annað sem líkist hrauni.
1 Ofnskúffa og 1 boltamót af súkkulaðiköku er notuð í þessa hugmynd. Mót er teiknað upp á smjörpappír, klipp út og kakan skorin eftir því. Smjörkrem er sett utan um neðri bútin, sbr. myndir. Boltakakan er sett yfir sem og hálsinn byggður upp. Smjörkrem er sett á milli og utan um alla kökuna. Grillpinnar eru notaðir til að halda hálsinum uppi á kökunni. Grænn sykurmassi er settur yfir alla kökuna og hálsinn. Kakan er skreytt með hringjamótum, tennur, nef og augu mótuð.
Skref fyrri skref:
hvernig gerir maður svona þannig að kakan verður eins og bolti eða svoleiðis??? hvar fær maður boltaform eða eitthvað ????
takk fyrir
Boltinn er gerður með sérstöku boltamóti. Þannig mót hafa fengist í Húsasmiðjunni og Búsáhöldum í Kringlunni.