Uppskrift 60-70 stk
25o g Dan Sukker sykur
250 g smjörlíki
325 g Kornax hveiti
1 stk egg
Kattartungur (súkkulaði)
Aðferð:
Sykur og smjörlíki hrært vel saman. Eggi og hveiti bætt út í . Hnoðið deigið hæfilega mikið og kælið. Deigið rúllað í lengjur og skorið í jafna bita (sneiðar) Sett á bökunarpappír á plötu. Kattartunga er sett á hverja köku. Passið að hafa bil á milli. Bakað við 190°C í 10-12 mínútur
hæhæ:) hvað á að kæla lengi 🙂 ?
Við gerum þetta yfirleitt kvöldið áður og kælum yfir nótt. Annars ætti að duga að kæla í 1-2 klst. Stundum þarf ekki að kæla deigið, svo framarlega sem þú getur rúllað deigið út og skorið í sneiðar þá ætti það að vera fínt til að byrja að baka.
hvar fást þessar kattartungur (súkkulaðið) ?? 🙂