Þessi er algjört yndi – Bragðið dásamlegt
Uppskrift fyrir tvo botna.
4 eggjahvítur
1/4 tsp cream of tartar
250 g sykur
Bleikur matarlitur
Aðferð:
Eggjahvíturnar og cream of tartar er þeytt mjög vel saman. Sykrinum síðan blandað smátt og smátt saman við. Matarlitnum blandað saman við. Þeytt þar til blandan er stífþeytt. Blandan sett á bökunarpappír, tveir botnar mótaðir. Bakað í um 50 mínútur við 135 gráða hita. Látið standa í lokuðum ofni í 1 klst áður en botninn er tekinn út.
Fylling:
350 ml rjómi
2 stór bounty
1 askja jarðarber
Karamellusósa – keypt tilbúin út úr búð
Aðferð: Rjóminn þeyttur, bounty og jarðarber skorið í niður, blandað saman við rjómann. Rjóminn er settur yfir annan botninn og karamellusósu hellt yfir rjómann. Efri botninn settur yfir.