Uppskrift:
500 g Kornax hveiti
300 g Smjörlíki
200 g Dan Sukker sykur
2 stk egg
2 tsk lyftiduft
2 tsk hjartasalt
vanilludropar
rabbarbarasulta
Aðferð:
Smjörlíki mulið saman við þurrefnin. Eggi og vanilludropum bætt saman við. Allt hnoðað þar til deigið er slétt og sprungulaust. Gott að geyma deigið yfir nótt í kæli. Deigið er síðan flatt út og mótað með hringmóti. Sulta sett í miðjuna á kökunni og síðan brotið til helminga og brúnunum þrýst saman með gafli. Bakað við 175° C í 8-10 mínútur.