Mandarínukaka með Pekanhnetum
250 gr sykur
250 gr smjör linað við stofuhita
2 stk egg
270 gr hveiti
2 tsk lyftiduft
salt á hnífsoddi
1 lítil dós niðursoðnar mandarínur
1/3 bolli mandarínusafi
50 – 70 gr Pekanhnetur
Aðferð:
1) Sykur og smjör hrært vel saman.
2) Eggin sett út í og hrært vel saman.
3) Hveiti, lyftiduft, salt, mandarínur sem eru teknar beint úr dósinni og skornar í smærri bita og safi settur saman við og blandað vel saman.
4) Deigið er sett í mót (20 X 30 cm) og pekanhneturnar eru muldar yfir deigið. Bakað við 170°C í 35 -40 mín.
5) Borið fram heitt eða kalt með rjóma eða ís.