Ca. 10 marengs toppar. Misstórir.
Í staðinn fyrir að gera 2 stóra botna eru gerðar 10 marengs toppar.
Fylling:
- ½ – 1 l rjómi (fer eftir fjölda toppanna).
- 2 stk brytjuð Toblerone
- Jarðarber til skrauts.
Súkkulaði til skrauts:
Bræðið súkkulaði og setjið smá rjóma saman við.
Aðferð: Raðið fjórum til fimm toppum á fallegan bakka. Settu tobleronerjómann á milli og ofan á. Raðaðu fleiri toppum ofan á rjómann og endurtaktu fyrra skref. Haltu þessu áfram þar til kakan er orðin hæfilega stór. Skreyttu kökuna með heilum eða hálfum jarðarberjum. Hellið súkkulaðiblöndu fyrir fjallið.