Skoða

Páskamarengs

Þessi kaka er hreinn unaður.  Cheeriosbotninn gerir mikið ásamt rjómajarðarberjafyllingunni.

Kakan er samsett úr cheeriosbotni, rjómafyllingu og merengsbotni.

Uppskrift: 

Cheeriosbotn: 
100 g smjör
300 g rjómasúkkulaði
200 g  síróp
150 g cheerios
150 g karamellukurl

Aðferð: 

Smjör, súkkulaði og síróp brætt saman í potti. Passa að hafa ekki of háan hita svo blandan brenni ekki við og muna að hræra í  af og til allan tímann. Cheerios sett út í blönduna og karamellukurlið sett saman við þegar búið er að kæla blönduna smá stund. Sett í hringlaga mót og kælt.

Marengsbotn:

4 eggjahvítur

220 g sykur

1 tsk lyftiduft

Matarlitur

Aðferð: 

Eggjahvíturnar eru þeyttar, sykrinum blandað saman við.  Blandan þarf að vera stífþeytt. Lyftidufti er blandað saman við í lokinn og hrært saman við.

Hringur er teiknaður á bökunarpappír. Sprautupoki gerður klár með 1m stjörnustúti. Gulur og rauður matarlitur er penslað í pokann – rákir gerðar.  Marengsblanda er síðan sett í pokann og henni sprautað á bökunarpappírinn.

Marengsinn er bakaður við 130° C hita í ca. 1 1/2 klst.

Rjómablandan:

1/2 l rjómi – þeyttur

10 jarðarber – skorin í litla bita.

1 poki Cadbury súkkulaði egg – söxuð í litla bita

Aðferð: 

Rjóminn er þeyttur og jarðarberin og súkkulaðieggin blandað saman við.

Cheeriosbotninn er settur á disk, rjómafyllingin á milli og marengsbotninn settur ofna á.

IMG_6174_0293

IMG_6176_0295

IMG_6181_0300

IMG_6182_0301

IMG_6218_0337

IMG_6267_0386

IMG_6301_0420

 

Related Posts