Marsipanfylltir snúðar með súkkulaðispænum og glassúr
300 gr hveiti
1 pk þurrger
25 gr sykur
1/2 tsk salt
1 dl mjólk
80 gr smjör brætt
1 stk egg
Aðferð:
Þurrefnin sett í skál. Mjólkin hituð þar ti hún er rétt volg og smjörið brætt. Þessu hrært saman ásamt egginu og blandað saman við þurrefnin. Passa að þetta sé ylvolgt. en ekki of heitt. Látið lyfta sé í c.a 45 mín eða þar til deigið hefur u.þ.b. tvöfaldast. Rúllið deiginu út í c.a. 20 X 40 cm. Smjörið brætt og smurt yfir deigið, marsipanið rifið yfir og perlusykri stráð jaft yfir og rúllað upp, skorið í sneiðar (c.a. 25 sneiðar) og sett á bökunarpappír á plötu. Látið snúðana hefast í c.a. 30 – 40 mín. Bakað við 180°C í c.a 8 – 12 mín. Súkkulaði eða rifið Odense Blöd Nougat raspað yfir snúðana heita og skreytt með glassúr sem er sprautað fallega yfir.
Marsipanfylling:
100 gr Odense marsipan
40 gr smjör
70 gr perlusykur
Aðferð:, Smjörið brætt og smurt yfir deigðið, marsipan rifið og stráð jafnt yfir deigið ásamt perlusykrinum..
Glassúr:
100 gr flórsykur
1 – 2 msk vatn.
Aðferð: Hrært saman og sett í sprautupoka og sprautað yfir snúðana.