Uppskrift fyrir 40 hringi
4 dl Kornax hveiti
3/4 dl Dan Sukker sykur
40 g smjör
1 stk egg
1 dl síróp
Aðferð:
Þurrefnunum blandað saman og smjörlíkinu bætt út í smáklípum. Hnoðað varlega saman . Egginu bætt út í deigið. Sírópinu er bætt út í deigið og allt hnoðað vel saman. Fletjið deigið frekar þunnt út og skerið út með hringjamóti. Kökurnar eru settar ár bökunarpappír á plötu . Bakað við 160°C í 6-8 mínútur eða þar til þær eru ljósbrúnar. Kælt áður en kremið er sett á milli.
Ef þið hafið ekki tíma til að baka kökurnar er vel hægt að nota piparkökur og setja krem á milli þeirra.
Krem:
125 g smjör
125 g Dan Sukker flórsykur
1 eggjarauða
1 tsk vanilludropar eða piparmyntudropar.
Aðferð:
Öllu hrært vel saman þar til kremið er orðið ljósgult og létt. Leggið kökurnar saman tvær og tvær með kreminu.