Nú er sumarið komið og ekki seinna vænna en að bretta upp ermarnar og bjóða fólki upp á dásamlega Pavlovu.
Finnst yndislegt hvað þær bráðna upp í munninum með öllum sínum munaði.
Uppskrift:
6 eggjahvítur
300 g sykur
1 msk kartöflumjöl
1 tsk edik
1 tsk vanillusykur
Fylling:
1/2 l þeyttur rjómi
200 g toblerone
1 dós ananaskurl – safinn tekinn í burtu og kurlið þerrað vel
Ofan á:
Karamellusósa
Toblerone
Ananaskurl
Aðferð:
1. Eggjahvítur þeyttar vel.
2. Sykri bætt saman við og honum þeytt vel saman við eggjahvíturnar þar til blandan er orðin stífþeytt.
3. Kartöflumjöl, edik og vanillusykur blandað varlega saman við.
4. Pavlovublandan sett á bökunarpappír. Gott að hafa lagið á kökunni um 22 cm, frekar háa á köntunum og grynnri í miðjunni.
5. Pavlovan er bökuð við 120 gráður í 1 1/2 klst. Gott að leyfa að vera yfir nótt í hálflokuðum ofni en ekki naðusynlegt.
6. Rjóminn er þeyttur, ananaskurlið og tobleronekurlinu blandað varlega saman við. Fyllingin er sett ofna á miðjuna.
7. Kakan er skreytt með karamellusósu, ananskurlu og toblerone.