Uppskrift:
4 eggjahvítur
2 dl Dansukker-sykur
½ pk. jarðarberjabúðingur Royal
1 tsk. lyftiduftAðferð: Eggjahvítur stífþeyttar. Sykur settur varlega út í og þeytt vel saman. Jarðarberjabúðingi og lyftidufti bætt út í og hrært varlega saman við.
Sett í sprautupoka með stórum stút og litlar kúlur mótaðar. Bakað við 140°C í 30 mín.Fylling:
1/2 l rjómi
1/2 -1 askja fersk jarðarber.
Aðferð:
Rjóminn er þeyttur og fersk jarðarber skorin í litla bita. Þessu blandað saman og sett á milli tveggja bolta og fryst. Snjóboltarnir eru bornir fram hálffrosnir.
I love your webside.