Skoða

Appelsínu Nóa Kropp marengsterta

Þessi er rosaleg…. Sumarleg og himnesk á bragðið!

Nóa Kropp með appelsínubragði er nýkomið á markað, því miður í takmörkuðu magni, svo ef þú ætlar að gera þessa tertu þá er eins gott að flýta sér.

Tertan er skreytt með mótunar súkkulaði með appelsínubragði frá Squires Kitchen.  Fiðrildin eru búin til með þrýstimótum.

Uppskriftin fyrir 2 botna

Nóa Kropp appelsínumarengs

4 eggjahvítur

210 g flórsykur

1 tsk lyftiduft

150 g Appelsínu Nóa Kroppi

60 g Síríus appelsínusúkkulaði, rifið

Aðferð:

Eggjahvíturnar eru stífþeyttar, flórsykri blandað varlega saman við og þeytt vel saman. Lyftiduft, nóa kropp og rifið súkkulaði hrært varlega saman við með sleif. Sett á bökunarpappír, tveir botnar. Bakað við 125 gráður við blástur í 1 klst og 45 mínútur. Botnarnir látnir kólna í ofninum.

Fylling:

300 ml.   þeyttur  rjómi

Skeyting:

Mótunarsúkkulaði er flatt út, skorið með fiðirldaþrýstimótum.

 

4 comments
  1. Ég er því miður ekki með blástursofn, en hvað ætti ég þá að baka botnana á miklum hita? 🙂

Comments are closed.

Related Posts