Skoða

Daim marengsterta með bláberjum og jarðaberjum

IMG_3727
Þessi marengsterta fannst mér koma mjög vel út.  Sérstaklega fannst mér gott að finna bragðið af daiminu í botninum – annars verð ég nú að viðurkenna að það er sjaldan sem mér líkar ekki við marengstertur, eitt af mínu uppáhaldi.

Uppskrift:

6 stk egg

300 g sykur

75 g (1 1/2 poki) Daimkúlur – fínmuldar

1/2 tsk lyftiduft

Aðferð: 

Eggjahvítan stífþeytt, sykri bætt útí smátt og smátt. Þetta er þeytt vel saman þar til blandan er orðin stíf.  Lyftiduft og daimkurli er blandað varlega saman við.  Tveir hringir teiknaðir á bökunarpappír, blandan sett á hringina. bakað við 130 gráður í ca. 1  1/2 klukkutíma.  Mjög gott að leyfa botnunum að kólna í ofninum.

Fylling:

1/2 líter þeyttur rjómi

Rjómasúkkulaði með daim  eða hreint rjómasúkkulaði

Jarðarber

Bláber

25 g Daimmulningur – fínmulinn

 

Aðferð:

Brytjuðu súkkulaði, jarðarberjum og bláberjum er hrært varlega saman við rjómann. Rjóminn er síðan sett yfir marengsbotninn, daimmulningnum sáldrað yfir rjómann og efri marengsbotninn settir að lokum ofan á.  Skreytt að vild.

IMG_3696

IMG_3694

IMG_3704-1

IMG_3714

IMG_3727

 

 

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts