Jólapokinn er frábær hugmynd fyrir jólaboðið í ár. Einföld en æðisleg hugmynd.
Kakan er búin til úr þremur ofnskúffustærðum af lagkökum. Hver botn hefur sinn lit eins og sést á myndunum.
Smjörkrem með túttí frúttí bragði gerir gæfumuninn í kreminum. Kakan er skreytt með sykurmassa í mismunandi litum. Snjókornamót eru notuð við skreytingarnar. Til að setja punktinn yfir i-ið er silfurduft og glimmer notað í skreytingarnar.