Skoða

Skálaréttur með eplum og karamellusósu

Það kemur fyrir að mann vantar eitthvað fljótlegt og einfalt til að gera fyrir t.d. saumaklúbbinn.

Þessi skálaréttur er einmitt þannig!

Uppskrift:

1 marengsbotn (keyptur eða heimatilbúinn)

1/2 líter þeyttur rjómi

1/2 dós sýrður rjómi

2 stk epli

1 tsk vanillusykur

Skraut ofan á:

Karamellukúlur frá Nóa Síríus

Karamellusósa frá St. Dalfour

Aðferð:

Marengsbotninn er mulinn í skálina, rjóminn þeyttur og eplum og sýrðum rjóma blanda saman við ásamt vanillusykrinum.  Rétturinn er skreyttur með karamellusósu og karamellukúlum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts