Kransaköku golfkaka fyrir golfarann.
Uppskrift:
1 kg Odense kransakökumarsipan (í bláum umbúðum)
1/2 kg sykur
2 stk eggjahvítur
Marsípan er rifið niður í hrærivélaskál með K-inu, sykrinum bætt saman við og eggjahvíturnar í lokinn. Mjög gott að geyma deigið í kæli áður en það er rúllað út. Bakað við 180° C í 8-10 mínútur
Mótið 7 jafn stóra hringi, bakið og raðið síðan hverjum ofan á annan. Festið hringina með því að skreyta hvern og einn með súkkulaðihjúp. Skreytingarpenninn kemur að góðum notum við skreytinguna.
Skreyting: Bræðið Odense súkkulaði og skreytið kökuna. Djúpur nammiklúlur henta vel til að fylla kransakökuna.
Mótið kúlur úr afgangs deigi og búið til golfkúlur. Þær eru hjúpaðar með hvítu Odense súkkulaði.
Í uppskriftinni kemur fram K-ið, hvað er það?
káið er hrærarinn eða hnoðarinn á kenwood hrærivél, er ekki viss hvort
Getið þið ekki gert hestakökur og hestakransakökur, af því að ég er brjáluð í hesta ;D
Getið þið ekki gert hestakökur og hestakransakökur, af því að ég er brjáluð í hesta ;D Og plís svarið mér.