Það puntar kökuborðið mikið að bjóða upp á kökupinna.
Pinnarnir eru hluti af gamaldagsþemanu okkar,
Þessi útfærsla er einföld en krefst þó tíma og nákvæmni. Notað var Betty Crocker kökumix en það sparar tíma og finnst mér pinnarnir fá sérstaklega mjúka og slétta áferð.
Uppskrift:
1 pakki Betty Crocker djöflakökumix
2/3 dós Betty Crocker súkkulaðikrem
1 poki hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus
Hvítt matarlitaduft ef þú vilt fá pinnana skjannahvíta
Aðferð:
Farið eftir leiðbeiningum á pakkningu og bakið kökuna í ca. 30 mínútur. Kælið botnana, skerið síðan í tvennt og myljið niður. Oft gott að nota matvinnsluvél en þó ekki nauðsynlegt (nægir oftast að nudda kökubútunum saman). Smjörkremi er bætt saman við og þessu hrært saman með gaffli. Mótið kúlur sem settar eru á smjörpappír, Kúlurnar eru kældar í ca. 30 mínútur.
Hvítir súkkulaðidropar eru bræddir, kökupinnum stungið í súkkulaðið og síðan í miðjuna á hverri kúlu. Pinninn er festur með því að kæla kúlurnar aftur í smá stund. Þegar pinnarnir eru tilbúnir er þeim stungið einum og einum í brædda súkkulaðið og þeir látnir þorna. Á meðan eru stafirnir eru eiga að fara á pinnana búnir til úr svörtum sykurmassa. Stafirnir eru mótaðir með stafamótum. Til að setja meiri stíl á kökupinnana er svörtum borða komið fyrir utan um þá og búin til slaufa. Hægt að bera fram pinnana á kökupinnastandi.