Marengsmassi
3 stk eggjahvítur
150 gr sykur
100 gr Odense Ren Rå Marsipan
Aðferð: Stífþeytið eggjahvítur. Blandið sykri varlega saman við og þeytið vel saman. Rifið marsipan sett varlega saman við hræruna. Teiknið hring eða hjarta á bökunarpappír og setjið deigið á bökunarpappírinn og setjið á plötu og bakið við 125°C í c.a. 50 – 60 mín. Kælið vel og setjið þeyttan rjóma með marsipan í yfir botninn og skreytið með jarðaberjum. Borið fram strax.
Fylling:
1/4 l rjómi
60 gr Odense Ren Rå Marsipan
250 – 300 gr jarðaber til skrauts