Smartieskökur (eru mjög líkar Subway smákökum)
Það er ekkert betra á góðum degi en að baka súkkulaðibitakökur, borða þær síðan með ískaldri mjólk.
Ég söðlaði um netið í leit að girnilegustu uppskriftinni.
Ég prófaði nokkrar uppskriftir en tvær stóðu upp úr þegar búið var að baka þær.
Það sem þarf að passa upp á með súkkulaðibitakökur er að baka þær ekki of lengi. Þær eiga í raun að líta út eins og hálf bakaðar þegar þær eru teknar út. Þær harðna eftir að þær eru teknar út.
Þessar tvær uppskriftir eru sagðar vera eins og hinar frægu Subway smákökur þrátt fyrir að vera með ólíkt innihald.
Uppskrift:
- 1 b mjúkt ósaltað smjör (einnig gott að setja smjör og smjörlíki til helminga)
- 1/2 b ljós Dan Sukker púðursykur
- 1/2 b dökkur Dan Sukker púðursykur
- 1 bolli Dan Sukker sykur
- 1 msk vanilludropar eða vanillusykur
- 1 egg
- 1 tsk matarsódi
- ¾ salt
- 2 3/4 bollar Kornax hveiti
- 2 bollar smarties eða annað sem þið viljið setja í kökurnar.
Aðferð:
Blandið smjöri , sykri og púðursykri saman og hrærið vel. Hrærið eggi og vanilludropum útí og síðan þurrefnunum. Geymið í kæli í 1 klst fyrir notkun.
Hitið ofninn í 180 ° hita og bakið kökurnar þar til brúnirnar eru orðnar brúnar eða í ca. 8-10 mínútur. Ekki láta þér bregða þótt kökurnar virðast óbakaðar. Ef þið bakið of lengi þá er hætt við að kökurnar verði of harðar. Geymið kökurnar á bökurnargrind þar til þær eru orðnar kaldar.
HÆ hæ,
á að vera svona mikið hveiti í kökunum? 😉
Búin að laga.