Nú eru námskeiðin að hefjast að nýju eftir smá hlé. Námskeiðin eru tilvalin fyrir þá sem eru að undirbúa fermingarveisluna sem og alla þá sem hafa áhuga á að læra eitthvað nýtt.
Næstu námskeið verða haldin í Grundaskóla Akranesi og verða sem hér segir:
Sykurmassanámskeið:
Við hjá mömmur.is bjóðum upp á fróðlegt og skemmtilegt sykurmassanámskeið þar sem kennd er grunntæknin við sykurmassagerð og skreytingar.
Á námskeiðinu er farið yfir helstu áhöld sem notuð eru, sýnt hvernig sykurmassinn er búinn til úr sykurpúðum og hvernig best er að setja hann yfir köku og skreyta.
Námskeiðið stendur yfir í ca. 3,5- 4 klst
Næstu námskeið eru haldin:
Fimmtudaginn 2. febrúar frá kl. 18:00-21:00
Sunnudaginn 5. febrúar frá kl. 10:00-13:00
Sunnudaginn 12. febrúar frá kl. 10:00-13:00
Verð 7900 kr
Bollakökunámskeið:
Skemmtilegt og fræðandi námskeið þar sem þú lærir að skreyta bollakökur með smjörkremi og sykurmassa.
Farið er yfir grunnatriði í bollakökugerð og skreytingum.
Námskeiðsgestir hafa aðgang að fjölbreyttu úrvali áhalda og hráefna til að skreyta bollakökur.
Hver og einn fær að skreyta 6 bollakökur og taka með sér heim.
Námskeiðið er 2,5 klst
Námskeiðsgjald 6900 krónur
Næsta námskeið: Fimmtudaginn 6. febrúar frá kl. 18:00-20:00
Kökupinnanámskeið: Lærir tækinina við að gera kökupinna. Hver og einn gerir sína kökupinna skreytir þá og tekur með sér heim.
Næsta námskeið:
Miðvikudaginn 8. febrúar frá kl. 18:00-20:30
Verð 6900 kr
Við bjóðum upp á:
-
Kökupinnanámskeið en það er nýjasta æðið í kökubransanum
-
Byrjendanámskeið í sykurmassagerð
-
Sýnikennslu í sykurmassagerð
-
Skreytingarnámskeið
-
Kynningar fyrir hópa, saumaklúbba og fyrirtæki
Halló ég heiti Emma Kamilla Finnbogad.
Ég er 12 ára og ég fékk miða frá ykkur, þegar bæjarhátíðin var í Mosfellsbæ. Þetta virðist mjös spennandi námskeið vegna þess að ég og amma mín elskum að baka. Ég var að lesa miðann sem ég fékk kem neflilega ekki neinstaðanr augað á hvað það kostar að fara á þetta námskeið hjá ykkur og klukkan hvað það er.
Með kæri bökunarkveðju
Emma Kamilla
hvað kostar námsskeiðið?
Námskeiðið kostar 8500 krónur en hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 575 7500. Það væri gaman að sjá ykkur!
Hæ hæ fær maður að gera massann sjálfur?
Það verður sýnikennsla og fróðleikur um áhöld og annað sem tengist sykurmassa. Seinni hluti námskeiðsins fá þátttakendur að gera gera sykurmassa 4 saman í hóp. Hver og einn skreytir síðan sína köku og tekur með heim.
Verða ekki námskeið á Skaganum .
Námskeiðin verða haldin í Kópavogi.
er aldurstakmark? 😀
Það er ekki aldurstakmark en ef það eru ungir krakkar er nauðsynlegt að hafa fullorðinn með.
en ef maður er 13 ára :p
Kl hvað er þetta?
Það er ein 12 ára skráð á námskeiðið svo 13 ára er í lagi 🙂
klukkan hvað er þetta og hvað er það lengi?
er þetta bara einn dagur eða fleiri? 😀
Námskeiðin eru frá 19:00- ca. 22:30/23:00.
Þetta er ein kvöldstund.
hvernig á ég að skrá mig? 😀
Það er hægt að skrá sig í síma 5757500 en þar eru gefnar nánari upplýsingar.
okei takk 😀
halló hún amma mín fór á þetta og fanst þetta *GG* =)
Verðið þið með fleiri námskeið?
Næstu námskeið eru 4. október og 11. október.
Það væri gaman að sjá þig 🙂
hæhæ ég hef voðalega miklan áhuga á að koma til ykkar á námskeið:D
Endilega hafðu samband í síma 5757500 ef þú vilt skrá þig.
kl hvað eru námskeiðin hjá ykkur:)?
Námskeiðin byrja kl. 19.00
Góðan dag. Mig langar að spurjast fyrir um svona námskeið hvort hægt væri að fá ykkur út á land til að halda námskeið. Hvað við þyrfturm að vera margar og hvað það mundi kosta á mann. Erum nokkrar sem vorum saman í mömmuhittingum í fæðingarorlofi og höfðum samastað í Húsi frítímans á Sauðárkróki og búum sem sagt þar. Þar er salur sem hægt væri sennilega að vera í.
Takk fyrir flotta síðu.
eru þessi námskeið ennþá haldin?
Hæhæ verðið þið með einhver námskeið á Akureyri ?
Næsta námskeið er þann 8.nóvember.
hvenær eru næstu námskeið ?
hæhæ hvenar eru næstu námskeið, og hvað getur maður skráð sig og séð tímasetningu. 🙂
Næstu námskeið eru mánudaginn, 8. nóvember og 22.nóvember frá kl. 19:00-22:00.
Það væri gaman að sjá okkur. Hægt að skrá sig í gegnum netfangið mommur@mommur.is eða í síma 5757500.
Sælar mömmur, hvernig er það.. Hafið/verðið þið með einhver námskeið í sykurmassa á Akureyri? Bý fyrir norðan en hefði mikinn áhuga á að læra svona…
Sæl, Við höfum því miður ekki verið með námskeið á Akureyri. Það sem hefur stoppað okkur er kostnaðurinn við ferðina. Hver veit nema við skellum okkur norður einn daginn!
verðið þið með námskeið í að búa til fígúrur, eða framhaldnámskeið fyrir þá sem kunna undirstöðuna
Það er hugsunin að bjóða upp á fleiri námskeið, veit þó ekki nákvæma tímasetningu.
Hæ verðið þið með dagatöl aftur?
og ef svo hvað kostar 1 st.
kv
Við verðum með dagatölin aftur, verð og nánari upplýsingar eru á: http://smaprent.is/?page_id=54
Eru þið að selja vörunar ykkar á sykurmassanámskeiðinu ?
Við erum með eitthvað af vörunum okkar til sölu á námskeiðinu.
Verða einhver fleiri námskeið hjá ykkur fyrir jól?
hæ hvenar er næsta námskeið hjá ykkur :))
hæhæh hvenar eru næstu námskeið hjá ykkur?Er nokkuð námskeið sem eru nálagt rvk ef svo er hvenar
Við bjóðum allan ársins hring upp á námskeið fyrir fyrirtæki og hópa, best í kringum 10- 15 manns. Við erum að skoða að setja á námskeið núna í maí. Við erum ekki búnar að festa dagsetninguna. Endilega fylgjast með eða hafa samband á netfangið: mommur@mommru.is
Hvað kosta námskeiðin hjá ykkur?
hvenær er næsta namskeið ? 😀
er namskeið einhver timann í ágúst ?
ég hef mikinn áhuga á að fara á svona námskeið hjá ykkur!
Við byrjum aftur með námskeið í haust!
hvenær i haust ? 😀
hæ hæ hvenar er næsta námskeið??