Skoða

Bollakökuæði

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er fátt skemmtilegra á góðum sumardegi en að bera fram fallegar bollakökur.  Vorum að fá svo skemmtilegt bollakökuskraut í vefverslun okkar sem er heldur betur gaman að skreyta með.

Í þetta skiptið fór ég einföldu leiðina og skellti í Betty Crocker mix. Betty stendur alltaf fyrir sínu. Mæli með að fólk kaup sér einn pakka og taki mér sér í sumarbústaðinn. Alltaf svo gaman þegar hægt er að bjóða gestum upp á góðar og fallegar bollakökur þegar það kíkir við í bústaðinn.

Fallegu formin eru úr hágæða pappa og er kosturinn við þau að kakan sést ekki í gegn, þau halda sér mjög vel í bakstrinum.  Ekki skemmir fyrir að þau eru einstaklega falleg.

Uppskriftin af kreminu sem var notað til að skreyta er hér: Vanillukrem með bleikum gel matarlit, klikkar ekki.

Sprautustúturinn sem var notaður til að fá falleg lag á kremið er 2D og 1M

Ég skemmti mér konunglega við skreytingarnar þar sem kökuskrautið er í skemmtilegum litum, lögun og hrikalega gott.

 

 

 

 

 

 

 

2 comments
Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts