Skoða

Kökublað Vikunnar 2012

Yndislegur mánuður sem nóvember er. Mér hefur lengi þótt nóvembermánuður svo  heillandi, frostið, kyrrðin, jólaljósin og svo ég tala nú um jólabaksturinn sem fer í hönd.

Ég ólst upp við mikinn bakstur en móðir mín var ansi iðin á því sviðinu. Í byrjun nóvember  var byrjað að baka hverja sortina á fætur annarri og var gossið geymt á vísum stað þar til á aðventunni.  Man nú alveg eftir því að hafa stolist í dósirnar, svo gott og yndislegur tími þegar ég hugsa til baka.

Nú er kökublað Vikunnar komið út og nú finnst mér jólin nálgast. Finnst fastur liður í jólaundirbúningnum að fletta blaðinu yfir og prófa mig áfram með uppskriftirnar í blaðinu.

Fyrir mörgum árum þegar ég var ung og áhugasöm stúlka um bakstur  var ég alltaf fyrst út í búð til að tryggja mér eintak. Blöðin á ég öll og nota þau jafnt og þétt yfir árið, alltaf jafn gaman að skoða þau yfir og prófa uppskriftirnar. Á þessum tíma hefði nú ekki hvarlað að mér að ég ætti eftir að eiga kökuþátt í blaðinu. Hlutirnir eru fljótir að breytast og  síðustu fjögur ár höfum við hjá mömmur.is lagt okkar af mörkum við efni blaðsins Að þessu sinni erum við með flottan kökuþátt sem inniheldur 8 blaðsíður af fjöldanum öllum af alls kyns góðgæti.  Blaðið er einstaklega fallegt í ár og stútfullt af flottum hugmyndum frá flottu fólki héðan og þaðan.

Ég er komin með blaðið í hendurnar og nú finnst mér jólin vera að koma…

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts