Skoða

Sykurpúða brownies

Ómótstæðilega góð og öðruvísi brownies með bræddum sykurpúðum!

Þessi kaka er hættulega góð (að mér finnst) og borgar sig að vera með fullt af fólki í kringum sig ef maður ætlar ekki að borða hana alla sjálfur.
Uppskrift:

185 g smjör

100 g dökk súkkuklaði

100 g ljóst súkkulaði

85 g Kornax hveiti

40 g kakó

50 g hvítt súkkulaði

50 g mjólkursúkkulaði

3 stór egg

275 g DanSukker púðursykur

Sykurpúðabráð (gerð meðan kakan er að bakast):

25 stk sykurpúðar

1/2 bolli DanSukker sykur

1/4 bolli mjólk

200 g súkkulaði

Aðferð:

Smjör, dökkir og ljósir súkkulaðibitar bræddir yfir vatnsbaði og látið kólna. Egg og púðursykur þeytt vel saman og bætt út í súkkulaðiblönduna. Bætið varlega við hveiti og kakói. Hvítum súkkulaðibitum og mjólkusúkkulaðibitum er blandað saman við.  Hellið í mót ca. 28 cm form í 30 mínútur við 160° C.

Þegar kakan er bökuð eru 10 sykurpúðar  settir ofan á heita kökuna og hún bökuð áfram í 5 mínútur. Dreifið úr bræddu sykurpúðunum þegar kakan er tekin úr ofninum. Sykurpúðabráðin er búin til á meðan. Sykur og mjólk sett í pott og látið sjóða í 1 mín. takið blönduna af hellunni og bætið við sykurpúðum og súkkulaði. Hrærið þar til sykurpúðarnir hafa bráðnað. Blöndunni er hellt yfir brownieskökuna. Leyfið kökunni að kólna. Mjög gott að bera fram með þeyttum rjóma.

 


 


Sykurpúða brownies

9 comments
  1. a kakan ad vera blaut i ser thad var hun hja mer , samt var bokunartiminn full nyttur
    kv ingunn

  2. Kakan á ekki að vera alveg hörð en ekki of lin. Oft harðnar kakan þegar hún kólnar. Ofnarnir eru jafn misjafnir og við fólkið og því getur bökunartíminn verið misjafn eftir þeim.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts