Þessi dásamlega marengsterta hentar vel í stórveislur fyrir þá sem vilja ekki hefðbundna rjómatertu með marsípani eða sykurmassa.
Ég er mikil marengskona, bæði elska ég að baka marengs og að borða þannig tertur.
Kosturinn við marengstertur er að þær eru fljótgerðar, þ.e. ef maður á tilbúna marengsbotna og síðan finnst mér svo margt passa á milli en þannig er hægt að leika sér með hin ýmsu hráefni.
Ég nota alltaf sömu uppskriftina í botninn sem er þessi:
Grunn marengsuppskrift: (tvær ofnskúffur)
8 stk eggjahvítur
400 gr Dan Sukker sykur
1 1/2 tsk lyftiduft
Aðferð: Þeytið eggjahvíturnar, blandið sykrinum smám saman við og hrærið þar til þetta er orðið stífþeytt. Lyftiduftinu er blandað varlega saman við. Setjið blönduna á plötu með sleikju eða sprautupoka og bakið í ca. 1 1/2 klst við 130 ° C blástur.
Rjómafylling:
1 líter rjómi
2 epli brytjað í smáa bita
1 poki Karamellukúlur frá Nóa Síríus
Ég sprautaði marengsblöndunni með sprautupoka og stútnum 1M frá Wilton. Byrja í miðjunni á hverri rós og sprauta í hringi þannig að rós myndast.
Langaði að prófa eitthvað nýtt og spreyjaði marengsinn með bleiku borðanlegu perluspreyi, kom rosalega vel út.
ÆÐI nammmmmmmmmmmmmm verð að prófa þetta 🙂
Vá, flott að nota Wilton stútana til að sprauta marengsinum og enn flottar að nota spreyið! Mér hefði aldrei dottið þetta í hug, verð að prófa þetta fyrir næstu veislu 🙂
Ein spurning.. Er eitthvert bragð af þessu spreyi ? finnst þetta algjör snilld og langar að hafa svona í afmælisveislunni hjá dóttur minni ! 😀
Er einhvað bragð af þessu spreyi ?
Glæsileg þessi :o) Ætli það sé hægt að nota matarlit í staðin fyrir spreyið? En hvar fær maður annars svona sprey?
Hæ væri alveg til í svona köku fyrir afmæli Samúel í mars Nína
Vá þetta er nú meiri snilldin með að gera marengsinn bleikan takk fyrir, verð að prófa!
Það er ekki bragð af spreyinu en maður finnur smá vanillulykt þegar maður spreyjar því. Ef ætlunin er að lita marengsinn og ekkert sprey nálægt þá er best að nota matarlitaduft til að bæta útí blönduna. Matarlitur með vökva virkar ekki eins vel. Um að gera að prófa sig áfram.
Er búin að prófa þessa, hún sló algjörlega í gegn,öllum fannst hún svo fersk sennilega gera eplin það.