Kókósbollusprengja er svo góð!
Ég hef gert svipaðan rétt og þennan síðan ég fór að búa en ætli einfaldleikinn og góða bragðið hafi þá ekki ráðið för.
Uppskrift:
Mulinn maregnsbotn (tilbúinn eða heimagerður)
1/2 líter þeyttur rjómi
Lífræn Karamellu og jarðarberjasósa frá St. Dalfour (fæst í Hakgaup)
4 Kókósbollur
Jarðarber og vínber
Aðferð: Mulinn margengsbotn er settur í eldfastmót. Þeyttur rjóminn settur yfir ásamt jarðarberja- og karamellusósunni. Kókósbollunum stappað yfir og brytjuum ávöxtum dreift yfir réttinn.
Geri oft svipað og þetta. Marengsbotn, kókosbollur, rjómi og alls konar ávextir. Síðan á toppinn set ég svo niðurskorið Marssúkkulaði en set ekki sósu. Öllum finnst þetta gott 🙂
Ég hef gert svipaðan rétt, marensbotn mulin, ég þeytti rjóma, síðan tek ég kremið innan úr kókósbollunum og blanda í rjómann dreyfi yfir marensinn, set allskonar ávexti vínber, jarðaber, bláber og kíví. Síðan set ég helling af nóa kroppi með ávöxtunum 😉 mmm þetta er besti réttur og ég geri hann oft þegar ég er með saumaklúbb 😉