Skoða

Karamellukurltoppar

Flestir þekkja Lakkrístoppana góðu og gera þannig kökur fyrir hver jól.

Fyrir skemstu kom á markaðinn Karamellukurl  frá Nóa Síríus og hefur eflaust mörgum dottið í hug að skipta út Lakkrískurlinu og sett Karamellukurl í staðinn.

(myndin er fengin af vef Nóa Síríus http://noi.is)

Ég ákvað að prófa og kom þetta bara nokkuð vel út. Það sem þarf að passa er að baka kökurnar ekki á of háum hita en kurlið verður hart ef kökurnar eru bakaðar of skart.

Uppskrift fyrir 80 stk.

3 stk eggjahvítur

100 g Dan Sukker púðursykur

100 g Dan Sukker sykur

200 g Karamellukurl frá Nóa Síríus

100 g Nóa Síríus rjómasúkkulaði, gróf saxað

Aðferð:

Stífþeytið eggjahvítur, blandið síðan sykrinum saman við og þeytið vel. Karamellukurl og rjómasúkkulaði er bætt varlega út í og hrært saman við með sleikju. Sett á bökunarplötu með teskeið eða smákökuskeið. Bakað við 170° C í 16-18 mínútur. Kælt áður en tekið er af plötunni.

 

2 comments
Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts