Það er alltaf gaman að prófa sig áfram með uppskriftir. Hér er ein sem er byggð á hinni vinsælu Rice Krispies köku sem slegið hefur í gegn í gegnum árin. Hægt að fara hinar ýmsu leiðir til að búa til góðan botn og góðar fyllingar.
Spes Nóa Kroppari
Uppskrift
1 svampbotn (hægt að kaupa tilbúinn út í búð)
Nóa Kroppblandan:
200 g súkkulaði
220 g síróp
60 g smjör
120 g special K mulið samt ekki of smátt
150 til 200 g Nóa Kropp til að setja yfir blönduna
Aðferð:
Súkkulaði, síróp og smjör brætt við vægan hita í potti. Kælt. Nóa Kropp sett yfir. Þetta er kælt í ísskáp eða smá stund í frysti áður en botninn er settur yfir kökuna. má líka nota sér og setja rjóma yfir. Betra að klæða botninn á forminu með bökunarpappír og nota form sem auðvelt er að losa botninn úr. T.d. smelluform eða lausbotna form.
Á milli:
3 dl rjómi
1 til 2 epli
2 msk pinnapple toppings (fæst í Hagkaup) og auka til að smyrja yfir svampbotninn áður en fyllingin fer yfir. Einnig hægt að nota ananasbita í staðinn, bleyta þá neðri botninn með safanum.
Skef fyrir skref:
Fyrst er Special K blöndunni komið fyrir í forminu, síðan er Nóa kroppi þjappað yfir.
Botninn er kældur í frysti eða kæli.
Botninn smurður með Ananas topping (fæst t.d. í Hagkaup) Einnig hægt að nota sultu eða ananassafa. Botninn síðan settur yfir. Gott að leyfa neðri botninum að blotna aðeins.