Skoða

Hollustubitar

Hollustubitar

Ef þér finnst gaman að gera hollustubita, væri ekki snilld að prófa þessa uppskrift.

Hér er grunnuppskrift af hollustubitum sem koma vel út:

Ca. 12 bitar

1 bolli haframjöl

1/2 bolli rúsínur

1/2 bolli Döðlur (mýkja upp í köldu vatni ef þú ætlar að nota matvinnsluvél)

1/4 tsk kanill

Skraut (þarf ekki): 

70% súkkulaði frá Nóa Síríus

Kókósmjöl

Aðferð:

Öllu blandað saman og síðan sett í matvinnsluvél. Athuga að ekki allar matvinnsluvélar þola álagið sem myndast þegar döðlurnar koma með.  Blandan er síðan sett í mótin.

Þessi skemmtilegu mót fást í versluninni Allt í köku –

Það góða við þessa uppskrift er að það er hægt að bæta ýmsu hráefni útí sem hentar hverjum og einum.
Mér finnst t.d. gott að blanda kókósmjöli og apríkósum saman við.

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts