Skoða

Pipp lakkrís góðgæti

Það er sko kominn tími á góðgæti sem þetta. Vakna upp frá sumardvalanum og trylla bragðlaukana.

Þessir bitar byggja á hinni hefðbundnu Rice Krispies uppskrift en með smá útfærslubreytingu.

Þessir yndislegu bitar eru tilvaldir í klúbbinn, afmælið eða þegar þig langar í eitthvað sætt.

IMG_6581Uppskrift:

200 g Pipp með lakkríssfyllingu

35 g smjör

125 g síróp

150 g Rice Krispies

100 g Lakkrískurl til skrauts ofan á.

Aðferð

Bræðið pipp, smjör og síróp saman í potti við miðlungshita.  Þegar allt er bráðið er Rice krispies sett saman við og öllu hrært vel saman.  Blandan er sett í smurt mót og kæld.  Mjög gott að setja bökunarpappír undir.  TIlvalið að skreyta með bræddu súkkulaði og lakkrískurli.

IMG_7499       IMG_7503 IMG_7504 IMG_7507 IMG_7508 IMG_7512

IMG_6585 IMG_6589

 

3 comments
Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts