Skoða

Vöfflukex

IMG_7451

Það er ýmislegt hægt að gera við vöfflujárnið en að baka hefðbundanar Vöfflur.

Hér erum við búnar að gera vöfflukex, stökkt og gott kex með súkkulaðibragði.  Algjör snilld þegar mann langar í eitthvað sætt.

Uppskrift:

75 g súkkulaði

125 g smjðr

175 g sykur

100 g hveiti

2 msk kakó

1/4 tsk lyftiduft

2 stk egg

1/4 tsk salt

1/2 tsk kanill

1 tsk vanilludropar

Súkkulaðibráð ofan á:

6 msk smjör

120 g flórsykur

6 tsk kakó

4 msk rjómi

 Aðferð (súkkulaðibráð)

Allt sett í pott og hitað saman í smá stund og smurt með pennsli yfir kexið.

Aðferð:
Smjör og súkkulaði brætt saman við vægan hita og kælt smá stun. Restin sett í skál og smjörsúkkulaðiblöndunni bætt út í og hrært vel saman.  Vöfflujárnið hitað og gott að spreyja með olíuspreyi. Deigið sett með teskeið í hvert lauf þar sem það er breiðast.  Betra að hafa ekki of mikið í hverju laufi þannig að það renni  ekki saman. Bakað í c.a. 1 1/2 mínútu. Passa samt upp á að það brenni ekki. Vöfflujárnin geta verið misjafnlega öflug.

Súkkulaðibráðin smurð með pennsli á vöfflukexið. Best að bera það fram fljótlega eftir bakstur með ískaldri mjólk.

 

Bettycrockerloka

IMG_7454

IMG_7466

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts