Skrapp í berjamó um daginn og týndi safarík aðalbláber.
Prófaði aðsetja bláber í Frönsku súkkulaðikökuuppskriftina mína, útkoman var dásamleg, fersk og góð súkkulaðikaka
Uppskrift:
200 g súkkulaði 56% eða meira
200 g smjör
4 egg
250 g sykur
70 g hveiti
180 – 200 g bláber
Aðferð:
Súkkulaði og smjör er brætt saman og látið kólna. Egg og sykur þeytt vel saman. Þegar súkkulaðiblandan er búin að kólna er henni hellt saman við eggjablönduna. Hveiti blandað saman, bláberin eru sett saman við í restina og hrærð varlega saman við. Sett í mót og bakað við 170 gráða hita í ca. 30-35 mínútur.
Sæl.
Notaðirðu fersk eða frosin bláber hér