Uppskrift:
6 stk eggjahvítur
330 gr sykur
1 tsk lyftiduft
bleikur gel matarlitur
Aðferð:
Eggjahvítur stífþeyttar.
Sykri bætt varlega saman við og hrært vel saman.
Lyftiduft hrært saman við með sleif.
Teiknaðir hringir á tvö stk bökunarpappír .Sprautað með 1 M stút á annan pappírinn. Byrjað að sprauta doppur á ystu línuna og svo áfram inn að miðju. Notaður pensill til að setja matarlitinn framan á stútinn og sprautað svo þar til það kemur lítill litur og endurtekið þar til búið er að fylla hringinn. Þá er hluti af deiginu smurt á hfinginn á hinum bökunarpappírnum og haft slétt. Restin af deiginu er síðan sett í sprautupokann og gerðar litlar doppur með sömu aðferð og á hringinn til að fá lit á marengsinn. Bakað við 130°C í 2 klst og látið kólna í ofninum.
Á milli:
6 dl rjómi
1 banan
5 – 6 jarðaber
6- 8 stk bla vínber
6 – 8 stk græn vínber
100 gr maribo dajm súkkulaði
100 gr maribo dajm súkkulaði
Aðferð:
Rjóminn stífþeyttur. Takið frá smá rjóma til að smyrja örlítið á hliðarnar.
Banani, jarðaber, vínbr og dajm súkkulaðið brytjað smátt og sett varlega saman við rjómann. Sett yfir slétta botninn. Efri botninn með doppunum settur varlega yfir. Smurt létt á hliðarnar og doppunum raðað í kringum kökuna. Látið standa í kæli í nokkra tíma áðiur en kakan er borin fram.
Flott marenskakan hjá þér en hvar fær maður gelmatarlit ?
Gelmatarlitir fást t.d. í Hagkaup eða versluninni Allt í köku RVK