Elska auðvelda “skála” rétti. Þegar ég var yngri og að byrja að fikra mig áfram í bakstrinum þá var þetta réttur svipaður þessum sem ég gerði oftast.
Auðveldur og hitti alltaf í mark.
Uppskrift:
Marengstoppar – hægt að kaupa þá tilbúna út úr búð (bleikir og hvítir)
Einnig hægt að gera þá sjálfur eða nota marengsmulning
1/2 líter rjómi
2-3 kókósbollur
1-2 epli brytjuð smátt
Karamellukúlur eftir smekk
Aðferð:
- Rjóminn er þeyttur, marengstopparnir settir í botninn á eldföstumóti (nokkrir doppar geymdir til að setja efst).
- Eplin brytjuð og helmingurinn settur saman við rjómann.
- Rjóminn settur yfir marengstoppana.
- Kókósbollurnar rifnar í sundur og settar reglulega í réttinn í réttinn.
- Restin af brytjuðu eplunum sáldrað yfir.
- Marengstopparnir sem voru geymdir eru síðan settir ofan á rjómann.
- Karamellukúlunum sáldrað yfir.