Marsterta að hætti mömmur.is
2 stk marengsbotnar/púðursykursbotnar
Uppskrfti:
6 eggjahvítur
300 g Dan Sukker sykur eða púðursykur (mjög gott að setja til helminga sykur og púðursykur)
1 tsk lyftiduft
2 bollar Rice Krispies (má sleppa)
Aðferð:
Þeytið eggjahvítunum vel saman, bætið síðan sykrinum saman við. Þeytið áfram þar til blandan er orðin þykk. Lyftidufti og Rice Krispies blandað varlega saman við. Bakið í 1 1/2 klst við 130 ° hita.
Á milli:
2 stk brytjuð Mars súkkulaði. (Einnig hægt að nota t.d. Snickers, Rólómola eða það sem þér finnst best).
½ líter rjómi
Ofan á tertuna:
6 stk eggjarauður
4 msk sykur/flórsykur (verður þykkara og sætara með flórsykri).
50 gr smjör
3 stk brædd Mars súkkulaði
Aðferð:
Þeytið saman eggjarauðum og sykri. Smjör og Mars brætt yfir vatnsbaði og kælt í smá stund. Öllu blandað saman og sett yfir kökuna.
Skref fyrir skref: